Já það má með sanni segja að það
sé langt síðan ég bloggaði eitt svona persónulegt
blog. Hef undanfarið
bloggað á mbl.is og ætla ég að halda því sem svona röflbloggi en
þessu svona persónulegu, og vonandi verð ég aðeins betri í að
skila inn fréttum af sjálfum mér hér inn.
Það mætti segja að það hafi margt
gerst síðan síðast. September var rólegur framan
af, eða þar til ég fékk einhverskonar andnauð og endaði upp á
spítala og var lagður þar inn með stíflu í
kransæð. Ég var náttúrulega
ekki skemmtilegur sjúklingur frekan en fyrri daginn, enda fann ég
lítið fyrir þessu. Var útskrifaður eftir
fjögurra daga legu, og rauk hálfum sólarhring síðar til London á
ráðstefnu. Hún var góð í alla staði og fræddist
ég mikið þar.
Eftir að ráðstefnunni lauk rauk ég
beina leið til Danmerkur og var í góðu yfirlæti hjá henni
Kötu. Lá mest með tærnrar upp í loft og gerði
mest lítið, en það var líka ætlunin. Við Kata
áttum saman góða viku, borðuðum vel og töluðum
mikið. Fór frá henni eftir rúma viku eins og nýr
maður og fór beint til vinnu daginn eftir heimkomu.
Október var tíðindalítill en það eina
sem var planað allann þann mánuð fyrir utan það venjulega, var að
hitta hjartalækninn. Sá tími var blásinn af, af
lækninum en ekki mér, og sat ég með hjartað í buxunum því
staðreyndin var sú að það leit út fyrir að ég þyrfti að fara í
hjartaaðgerð. Því voru ekki skemmtileg tíðindi
að tímanum væri frestað um mánuð, því það þýddi að ég þyrfti að
vera með hjartað í brókunum í mánuð í viðbót.
Nóvember leið eins og hver annar
mánuður. Vinna, sofa, éta, var það eina sem ég
gerði framan af mánuðinum. Læknisheimsóknin kom
svo og kom í ljós að ekki þyrfti ég í aðgerð á
næstunni. Þvílíkur léttir.
Næsti hittingur við lækninn er í maí og best að taka sig á fram að
þeim tíma. Fór á jólahlaðborð í Hveradölum
síðustu vikuna í nóv. Og var það fínt.
Desember byrjaði með
stæl. Gleðipartý heima hjá Júlíu reyndist algert
hit og fullt hús af fólki. Vil nota tækifærið og
þakka fyrr mig og vonandi að allir hafi skemmt sér jafnvel og
ég. Fór einn heim að vana, snemma, nennti ekki í
bæinn, svo ég var kominn sáttur heim um half þrjú.
Er svo að fara næstu helgi á jólahlaðborð í
Viðey og það verður örugglega næs.
Er bara búinn að kaupa flestar
jólagjafir og bara eiginlega kominn í smá
jólafílíng. Ætla bara að njóta þess að vera til
þennann mánuð, því guð veit að enginn veit hvenær tími manns her á
jörð er búinn, svo maður verður að nýta hann vel.
Adios í bili.